Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 22. mars 2021 18:30
Brynjar Ingi Erluson
Leipzig kaupir Simakan frá Strasbourg (Staðfest)
Mohamed Simakan fer til Leipzig í sumar
Mohamed Simakan fer til Leipzig í sumar
Mynd: Getty Images
Þýska félagið RB Leipzig hefur gengið frá kaupum á franska varnarmanninum Mohamed Simakan en hann kemur frá Strasbourg.

Simakan er 20 ára gamall og hefur spilað feykivel með Strasbourg í frönsku deildinni á þessari leiktíð.

Hann hefur skorað eitt mark fyrir liðið í 19 leikjum á þessari leiktíð en ítalska félagið AC Milan sýndi honum mikinn áhuga síðasta sumar.

Simakan mun hins vegar ganga til liðs við RB Leipzig í sumar og hefur hann nú þegar skrifað undir fimm ára samning við félagið. Leipzig greiðir Strasbourg 18 milljónir evra fyrir leikmanninn.

Franski varnarmaðurinn mun ganga til liðs við Leipzig í sumar og klæðast treyju númer 2.

Hann mun fylla skarð Dayot Upamecano sem gengur til liðs við Bayern München eftir tímabilið.
Athugasemdir
banner
banner
banner