Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 22. mars 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stór landsliðsverkefni hefjast í vikunni - Hvenær eru leikirnir?
Icelandair
Strákarnir okkar hefja leik í undankeppni HM.
Strákarnir okkar hefja leik í undankeppni HM.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
U21 landsliðið tekur þátt í riðlakeppni Evrópumótsins.
U21 landsliðið tekur þátt í riðlakeppni Evrópumótsins.
Mynd: Getty Images
Það er virkilega spennandi og vonandi skemmtilegir landsleikir framundan. Landsliðsverkefnin hefjast í þessari viku.

A-landslið karla hefur leik í undankeppni HM. Liðið leikur þrjá leiki, alla á útivelli.

Þá spilar U21 landsliðið í riðlakeppni Evrópumótsins. Tvö efstu liðin komast áfram í átta-liða úrslit en Ísland er í erfiðum riðli með Danmörku, Frakklandi og Rússlandi. Íslenska liðið spilar alla leiki sína í Ungverjalandi.

A-landsliðið og U21 landsliðið leika þrjá leiki sína á sömu dögum og fólk þarf að koma sér vel fyrir í sófanum þessa þrjá daga.

Leikir A-landsliðsins:

FIMMTUDAGUR 25. MARS
19:45 Þýskaland - Ísland

SUNNUDAGUR 28. MARS
16:00 Armenía - Ísland

MIÐVIKUDAGUR 31. MARS
18:45 Liechtenstein - Ísland

Leikir U21 landsliðsins:

FIMMTUDAGUR 25. MARS
17:00 Rússland - Ísland

SUNNUDAGUR 28. MARS
13:00 Ísland - Danmörk

MIÐVIKUDAGUR 31. MARS
16:00 Ísland - Frakkland
Athugasemdir
banner
banner