Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 22. apríl 2021 14:30
Ívan Guðjón Baldursson
Hamar fær Tote frá Fjarðabyggð (Staðfest)
Mynd: Hamar
Hamar í Hveragerði er búinn að staðfesta komu Jose Antonio Fernandez Martinez, eða 'Tote', frá Fjarðabyggð.

Tote er gríðarlega öflugur sóknartengiliður sem lék mikilvægt hlutverk í liði Fjarðabyggðar í fyrra.

Tote er fæddur 1996 og mun eflaust reyna Hvergerðingum afar mikilvægur í 4. deildinni.

„Við bjóðum Tote velkominn í Hamar og erum viss um að hann muni styrkja liðið og miðla reynslu sinni til okkar flottu drengja sem eru fyrir í liðinu," segir á Facebook síðu Hamars.

Hamar vann sinn riðil í 4. deildinni í fyrra en tapaði fyrir KFS í undanúrslitum úrslitakeppninnar.
Athugasemdir
banner
banner