Manchester United mætir Crystal Palace í lokaumferðinni sem hófst núna kl 15. Með sigri gulltryggir liðið sér þatttökurétt í Evrópudeildinni.
Það er enginn Cristiano Ronaldo í leikmannahópi United í dag en Edinson Cavani byrjar.
Ralf Rangnick er staðráðinn í að vinna leikinn í dag og tryggja Evrópudeildarsæti áður en hann stígur frá borði.
„Það væri gott að klára tímabilið á góðum leik, þremur stigum. Ég er viss um að liðið sé á sama bandi, ég er viss um að þeir vilji frekar spila í Evrópudeildinni frekar en Sambandsdeildinni," sagði Rangnick.
Hann staðfesti að Cavani sé að spila sinn síðasta leik fyrir félagið.
„Af byrjunarliðinu í dag eru tíu leikmenn sem verða enn hérna á næsta tímabili, aðeins Cavani sem verður ekki,"
Athugasemdir