Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 22. maí 2022 18:56
Brynjar Ingi Erluson
Jóhannes Karl hættur með KR (Staðfest) - Sagði upp í byrjun maí
Jóhannes Karl Sigursteinsson er hættur með KR
Jóhannes Karl Sigursteinsson er hættur með KR
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhannes Karl Sigursteinsson er hættur með KR eftir aðeins fimm leiki í Bestu deild kvenna en þetta kemur fram í yfirlýsingu félagsins í dag.

Jóhannes tók við liði KR sumarið 2019 og stýrði liðinu í 7. sæti Pepsi Max-deildarinnar.

Tímabilið var flautað af snemma sumarið 2020 vegna útbreiðslu Covid-19 og fór því svo að KR féll niður í Lengjudeildina en hann náði að stýra liðinu beint upp í efstu deild á síðasta ári.

KR hefur ekki beint átt draumabyjun í Bestu deildinni en liðið hefur tapað öllum fimm leikjum sínum og tapaði nú síðast fyrir Val, 9-1, á Origo-vellinum.

Jóhannes Karl hefur nú látið af störfum sem þjálfari liðsins en hann sagði upp störfum í byrjun maí.

Arnar Páll Garðarsson, aðstoðarþjálfari KR og Gunnar Einarsson, þjálfari yngri flokka, munu stýra liðinu fram að mánaðarmótum.

KR er í neðsta sæti deildarinnar og án stiga með markatöluna 2:24.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner