Fotbolti.net
22.06.21 - 20:54
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Orri Hjaltalín: Gaman að vinna gömlu félagana

Auglýsing
Orri Hjaltalín: Gaman að vinna gömlu félagana
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Mjólkurbikarinn
Þór er komið áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins eftir 2-1 sigur á Grindavík á Salt-Pay vellinum á Akureyri.
Orri Freyr var til viðtals hjá Fótbolta.net eftir leikinn. Hvernig er tilfinningin?

„Hún er mjög góð. Það er alltaf gaman að vinna, fyrir mig persónulega að vinna gömlu félagana í Grindavík. Ég er mjög ánægður með úrslitin"

Síðast þegar liðin áttust við í bikarkeppni var Orri Freyr fyrirliði Grindavíkur.

„Já, ég á ekki góðar minningar úr þeim leik, ég held að þeir hafi skorað með síðustu snertingu í framlengingu. Ég náði að hefna fyrir það í dag.

„Þetta var mjög erfiður leikur, völlurinn erfiður, smá vindur. Við náðum að sýna karakter og hanga á þessu marki, við höfum verið gjarnir á að fá á okkur mark þegar það hefur legið á okkur í einhvern tíma. Við héldum út í dag sem er mjög gott."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.