Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 22. júní 2022 16:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ajax ætlar að bjóða aftur í Bergwijn - Spurs vill 25 milljónir
Mynd: Getty Images
Ajax hefur áhuga á því að fá Steven Bergwijn í sínar raðir frá Tottenham og Hollendingurinn vill fara frá enska félaginu.

Ajax hefur þegar boðið í leikmanninn en því tilboði var hafnað. Tottenham vill fá allavega 25 milljónir punda fyrir sóknarmanninn.

Ajax hefur aukið fjármagn til að eyða í leikmenn eftir að félagið seldi Sebastien Haller til Dortmund á ríflega 30 milljónir punda.

Bergwijn vill fara frá Tottenham til að auka líkur á því að hann verði að spila reglulega þegar kemur að HM í Katar í nóvember.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner