mið 22. júní 2022 19:29
Brynjar Ingi Erluson
Bournemouth fær Fredericks frá West Ham (Staðfest)
Ryan Fredericks mættur til Bournemouth
Ryan Fredericks mættur til Bournemouth
Mynd: Bournemouth
Enski hægri bakvörðurinn Ryan Fredericks gerði í dag tveggja ára samning við Bournemouth en hann kemur á frjálsri sölu frá West Ham.

Fredericks er 29 ára gamall og hefur spilað með West Ham síðastliðin fjögur ár.

Hann spilaði 77 leiki fyrir West Ham og hjálpaði liðinu að komast í undanúrslit Evrópudeildarinnar á síðustu leiktíð en hann ákvað að framlengja ekki samning sinn við félagið.

Fredericks ákvað að ganga í raðir nýliða Bournemouth og gerði tveggja ára samning við félagið.

Bournemouth lenti í 2. sæti ensku B-deildarinnar á síðasta tímabili en tvö ár eru síðan liðið spilaði síðast í úrvalsdeildinni.

Fredericks er fyrsti leikmaðurinn sem Bournemouth fær í þessum glugga.
Athugasemdir
banner
banner
banner