Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
banner
   mið 22. júní 2022 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Celtic fær Siegrist (Staðfest) - Bernabei nálgast
Mynd: Dundee
Mynd: EPA

Celtic var að krækja í Ben Siegrist á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Dundee United rann út.


Siegrist er þrítugur markvörður og var í viðræðum við nokkur félög áður en hann valdi Celtic.

Hann mun berjast við Joe Hart um byrjunarliðssætið hjá Skotlandsmeisturunum. Siegrist var nokkuð eftirsóttur í vetur og var Manchester United meðal annars orðað við hann í leit sinni að varamarkverði.

Siegrist fór 17 ára gamall til Aston Villa en spilaði aldrei leik fyrir félagið. Hann þótti mikið efni á sínum tíma og á 20 leiki að baki fyrir yngri landslið Sviss.

Celtic er þá að krækja í vinstri bakvörðinn Alexandro Bernabei frá Lanus í Argentínu.

Bernabei er 21 árs gamall og mun Celtic borga rétt tæpar 4 milljónir fyrir bakvörðinn, sem er búinn að kveðja liðsfélaga og starfsmenn hjá Lanus.

Bernabei hefur spilað fyrir U19 landslið Argentínu.


Athugasemdir
banner
banner
banner