Af bekknum á Selfossi í byrjunarliðið í Bestu

Vinstri kantmaðurinn er að gera vel í Eyjum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hefur skorað þrjú mörk í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Ánægður með Róbert.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrirliðinn er gríðarlega mikilvægur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eyjamenn á góðu skriði.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vann Fótbolti.net bikarinn með Selfossi 2024.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vinstri kantmaðurinn er að gera vel í Eyjum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sesar skoraði jöfnunarmark ÍBV í leiknum og var það hans þriðja mark í Bestu deildinni í sumar. Stjarnan komst mjög snemma yfir í leiknum en Eyjamenn svöruðu með tveimur mörkum áður en fyrri hálfleikurinn var úti. Það var Bjarki Björn Gunnarsson sem skoraði sigurmarkið.
Byrjuðu að trúa
Sigurinn var sá þriðji í röð hjá ÍBV og fjórði leikurinn án taps.
„Það sem breyttist hjá okkur er að við byrjuðum að trúa. Við vorum að spila vel en ekki að ná inn úrslitum, en núna eru þau að koma eftir erfiða byrjun."
Las stöðuna hárrétt
Hvernig var markið í gær?
„Ég sé að boltinn er að detta fyrir Alex á miðjunni og næ að lesa það. Ég næ að stinga mér í gegn og eftir þessa frábæru sendingu frá Lexa þurfti ég bara að skora," segir markaskorarinn. Hægt er að sjá markið í færslunni neðst.
Líður vel í Eyjum og gott að ná inn mörkum
Sesar kom til Vestmannaeyja frá Selfossi í vetur og hefur byrjað átta leiki í Bestu í sumar. Hvernig hafa mánuðirnir í Eyjum verið?
„Mér líður bara mjög vel með fyrstu mánuðina í Eyjum. Það hefur verið smá erfitt upp á siglingar Herjólfs að gera og að hafa ekki fengið æfingaleiki fyrir mót."
„Ég er mjög ánægður með hlutverk mitt og að ég sé byrjaður að ná inn mörkum."
Mjög næs að spila með Róberti
Hvernig er að spila með Róberti Elís Hlynssyni frammi?
„Það er mjög næs að hafa framherja sem vinnur 90% af skölluðum boltum og er með geðveikar sendingar, þannig að það er mjög næs að spila með honum."
Langaði að láta reyna á það í Bestu
Af hverju samdir þú við ÍBV?
„Ég tók ákvörðun um að skrifa undir við ÍBV því þetta leit út fyrir að vera mjög spennandi og krefjandi verkefni. Eftir erfitt tímabil hjá Selfossi í fyrra og lítinn spiltíma hafði ég samt enn þá trú á því að ég ætti mikið inni og mig langaði að láta reyna á það í Bestu."
Sesar, sem er fæddur árið 2006, kom við sögu í 13 Lengjudeildarleikjum í fyrra með uppeldisfélaginu Selfossi og skoraði í þeim eitt mark.
Sjokk þegar Láki hætti
Þegar Sesar var kynntur hjá ÍBV var Þorlákur Árnason þjálfari liðsins. Skömmu seinna hætti Láki og rúmum mánuði síðar var Aleksandar Linta ráðinn þjálfari liðsins. Var skrítið þegar Láki hætti rétt eftir að þú varst tilkynntur?
„Já, það var smá skrýtið þegar ég frétti að Láki hætti, því hann fékk mig inn í leikkerfið sitt og það var smá sjokk. En sem betur fer fengum við inn annan mjög góðan þjálfara, hann Linta. Hann er með mjög krefjandi og góðar æfingar og gefur góðar skýringar á hlutverki leikmanna."
Gefur liðinu svakalega innspýtingu
Gengi ÍBV er mun betra þegar fyrirliðinn Alex Freyr Hilmarsson er í liðinu. Hvað gefur hann liðinu?
„Alex er ekkert eðlilega góður gæi, innan sem utan vallar, og gefur liðinu svakalega innspýtingu þegar við þurfum á því að halda," segir Sesar að lokum.

Hefur skorað þrjú mörk í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Ánægður með Róbert.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrirliðinn er gríðarlega mikilvægur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eyjamenn á góðu skriði.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vann Fótbolti.net bikarinn með Selfossi 2024.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 12 | +35 | 34 |
| 2 | KR | 11 | +13 | 25 |
| 3 | Fram | 11 | +5 | 23 |
| 4 | Breiðablik | 11 | +9 | 19 |
| 5 | Valur | 12 | -4 | 16 |
| 6 | ÍA | 10 | -3 | 15 |
| 7 | Keflavík | 11 | -7 | 12 |
| 8 | Stjarnan | 12 | -5 | 11 |
| 9 | ÍBV | 11 | -5 | 11 |
| 10 | KA | 11 | -6 | 10 |
| 11 | Þór | 11 | -19 | 7 |
| 12 | FH | 11 | -13 | 6 |




