Hemmi um Adam Páls: Þurfum sterka varnarmenn

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson
Það vakti athygli að Adam Ægir Pálsson var í gær ónotaður varamaður hjá Val annan leikinn í röð. Valur var í leit að sigurmarki gegn Keflavík en ekki kom sóknarmaðurinn Adam inn á.
Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, var ánægður með frammistöðuna í leiknum en hann var svekktur með niðurstöðuna. Hann var spurður út í Adam í viðtali eftir leikinn.
Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, var ánægður með frammistöðuna í leiknum en hann var svekktur með niðurstöðuna. Hann var spurður út í Adam í viðtali eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Valur 1 - 1 Keflavík
„Nei nei, engin sérstök ástæða. Við erum kannski aðeins að breyta til með varnarleikinn fremst á vellinum og þurfum sterka varnarmenn," sagði Hemmi við Fótbolta.net eftir leikinn í gær. Viðtalið við þjálfarann má nálgast í spilaranum neðst.
Adam er 28 ára, hann hefur skorað þrjú mörk og lagt upp eitt í tíu leikjum í deildinni og hafa átta af þeim verið byrjunarliðsleikir.
Valur hefur fengið eitt stig úr síðustu fjórum leikjum sínum. Hemmi er ánægður með frammistöðuna í síðustu tveimur leikjum, gegn ÍA og Keflavík, eftir töp gegn Víkingi og KR í leikjunum þar á undan. Valsarar eru þunnskipaðir sóknarlega þar sem þeir Kristinn Freyr Sigurðsson, Patrick Pedersen og Dagur Orri Garðarsson glíma við meiðsli. Lúkas Logi Heimisson var þá í leikbanni í gær.

Hemmi svekktur: Ógnarsterk frammistaða
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 14 | +39 | 40 |
| 2 | KR | 14 | +14 | 29 |
| 3 | Fram | 13 | +7 | 27 |
| 4 | Breiðablik | 13 | +7 | 22 |
| 5 | Valur | 14 | -3 | 19 |
| 6 | Keflavík | 13 | -6 | 16 |
| 7 | Stjarnan | 14 | -3 | 15 |
| 8 | ÍBV | 13 | -4 | 15 |
| 9 | ÍA | 13 | -8 | 15 |
| 10 | KA | 13 | -9 | 10 |
| 11 | FH | 13 | -13 | 8 |
| 12 | Þór | 13 | -21 | 8 |