Fotbolti.net
22.06.26 - 19:08
Jóhann Þór Hólmgrímsson

HM: Messi skrifaði söguna og Argentína er komið í 32-liða úrslit

HM: Messi skrifaði söguna og Argentína er komið í 32-liða úrslit
Canon

Mynd: EPA

Argentína 2-0 Austurríki
0-0 Lionel Messi ('9 , misnotað víti)
1-0 Lionel Messi ('38 )
2-0 Lionel Messi ('90 )
Lionel Messi varð markahæsti leikmaður í sögu heimsmeistaramótsins þegar hann skoraði tvennu í sigri Argentínu á Austurríki í kvöld.

Argentína tryggði sér farseðilinn í 32-liða úrslitin með þessum sigri.

Messi fékk tækifæri til að slá markametið þegar Argentína fékk vítaspyrnu snemma leiks. Brotið var á Lautaro Martinez inn á teignum.

Messi steig á punktinn en skaut framhjá og honum tókst ekki að slá markametið í þetta sinn.

Hann fékk fleiri tækifæri í kjölfarið og braut loksins ísinn á 38. mínútu. Facundo Medina átti sendingu út í teiginn, Martinez lét boltann fara og Messi mætti og setti boltann í netið.

Hann jafnaði met Miroslav Klose með þrennu gegn Alsír í fyrstu umferð en skoraði sautjánda markið í kvöld og er einn á toppnum.

Bæði lið fengu tækifæri til að skora í seinni hálfleik en Austurríkismenn voru nálægt því að jafna metin í uppbótatíma. Patrick Wimmer átti hins vegar skalla framhjá.

Strax í kjölfarið átti Messi sendingu á Julian Alvarez sem var í dauðafæri en Alexander Schlager varði frá honum. Boltinn barst aftur til Messi sem skoraði af miklu harðfylgi og skoraði sitt fimmta mark á mótinu og 18. markið á heimsmeistaramóti.

Frábært kvöld fyrir Messi og Argentínu sem er komið í 32-liða úrslitin.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
HM: Messi skrifaði söguna og Argentína er komið í 32-liða úrslit
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.