Fotbolti.net
22.06.26 - 18:21
Ívar Björgvinsson

Byrjunarlið KR og ÍA: Óskar treystir sama liði - Tveir frá hjá ÍA

Byrjunarlið KR og ÍA: Óskar treystir sama liði - Tveir frá hjá ÍA
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR og ÍA mætast á Meistaravöllum í kvöld í lokaleik 11. umferðar Bestu deildar karla. Byrjunarlið beggja liða eru komin inn og má finna þau hér að neðan.

Lestu um leikinn: KR 5 - 3 ÍA

Óskar Hrafn gerir engar breytingar frá 2-0 tapinu gegn Víkingum í síðustu umferð. Allur hópurinn er nákvæmlega eins og gegn Íslandsmeisturunum og ljóst að Óskar Hrafn ætlar að treysta því að liðið muni spila betur en það gerði í síðustu viku.

Lárus Orri gerir tvær breytingar á byrjunarliði sínu frá 1-0 sigrinum á Val í síðustu umferð. Gísli Eyjólfsson og Böðvar Böðvarsson eru ekki í hóp í kvöld en Böðvar tekur út bann eftir uppsöfnuð gul spjöld. Inn í liðið koma þeir Jóhannes Vall og Ísak Máni Guðjónsson.

Byrjunarlið KR

Halldór Snær Georgsson, Michael Osei Akoto, Finnur Tómas Pálmason, Stefán Árni Geirsson, Aron Sigurðarson (fyrirliði), Luke Morgan Conrad Rae, Amin Cosic, Gabríel Hrannar Eyjólfsson, Arnór Ingvi Traustason, Hrafn Tómasson, Orri Hrafn Kjartansson

Byrjunarlið ÍA

Jón Sölvi Símonarson, Johannes Björn Vall, Baldvin Þór Berndsen, Haukur Andri Haraldsson, Guðmundur Þórarinsson, Viktor Jónsson, Erik Tobias Tangen Sandberg, Ísak Máni Guðjónsson, Ómar Björn Stefánsson, Markús Páll Ellertsson, Jón Gísli Eyland Gíslason

Böðvar er í banni í kvöld.

Böðvar er í banni í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.14+3940
2KR15+1732
3Fram14+1230
4Breiðablik13+722
5Valur15-519
6Keflavík13-616
7Stjarnan14-315
8ÍBV14-715
9ÍA13-815
10FH14-1111
11KA13-910
12Þór14-268
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.