Fotbolti.net
22.06.26 - 21:12
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Besta deildin: Átta marka veisla á Meistaravöllum

Besta deildin: Átta marka veisla á Meistaravöllum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR 5 - 3 ÍA
0-1 Ísak Máni Guðjónsson ('12 )
1-1 Arnór Ingvi Traustason ('15 )
1-2 Ómar Björn Stefánsson ('16 )
2-2 Luke Morgan Conrad Rae ('32 )
3-2 Aron Sigurðarson ('61 )
3-3 Rúnar Már S Sigurjónsson ('64 )
4-3 Aron Sigurðarson ('83 )
5-3 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('95 )
Lestu um leikinn
Lestu um leikinn: KR 5 - 3 ÍA
Það var fjörugur leikur í kvöld þar sem KR fékk ÍA í heimsókn á Meistaravelli.

Skagamenn byrjuðu leikinn af miklum krafti og komust yfir eftir rúmlega tíu mínútna leik þegar Ísak Máni Guðjónsson skoraði laglegt mark.

Aðens þremur mínútum síðar skoraði Arnór Ingvi Traustason og jafnaði metin. Fjörið hélt áfram því Skagamenn náðu forystunni aftur strax í kjölfarið. Gabríel Hrannar Eyjólfsson skallaði boltann yfir Halldór Snæ Georgsson og boltinn var á leið í markið þegar Ómar Björn Stefánsson potaði honum inn.

KR-ingar lágu á Skagamönnum og tókst að jafna metin eftir um hálftíma leik þegar Luke Rae lagði lokahöndina á frábæra sókn.

KR náði forystunni í fyrsta sinn eftir klukkutíma leik þegar Aron Sigurðarson skallaði boltann í netið. Stuttu síðar jöfnuðu Skagamenn eftir hornspyrnu eftir mikinn barning inn á teignum.

Það var síðan Aron Sig sem kom KR-ingum yfir þegar hann skoraði eftir sendingu frá Galdri Guðmundssyni.

Skagamenn voru hársbreidd frá því að jafna metin í blálokin þegar Gabríel Snær Gunnarsson skaut í slá af stuttu færi. Jón Sölvi Símonarson, markvörður ÍA, var kominn fram í lokin og KR-ingar brunuðu fram og Eiður Gauti Sæbjörnsson innsiglaði sigurinn.

KR er í 2. sæti með 28 stig, sex stigum á eftir toppliði Víkings. ÍA er í 6. sæti með 15 stig.
Besta deildin: Átta marka veisla á Meistaravöllum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.14+3940
2KR15+1732
3Fram14+1230
4Breiðablik13+722
5Valur15-519
6Keflavík13-616
7Stjarnan14-315
8ÍBV14-715
9ÍA14-915
10KA14-813
11FH14-1111
12Þór14-268
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.