Giroud: Messi verður sífellt betri með aldrinum

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Lionel Messi er orðinn markahæsti leikmaður í sögu heimsmeistaramótins eftir að hafa skorað bæði mörkin í 2-0 sigri á Austurríki í kvöld.
Messi bætti met Miroslav Klose þegar hann skoraði fyrra markið en hann skoraði mark númer átján í blálokin og innsiglaði sigur Argentínu og farseðilinn í 32-liða úrslitin.
Olivier Giroud, fyrrum landsliðsmaður Frakka, segir að Messi verði bara betri með aldrinum en hann fagnar 39 ára afmælinu sínu á miðvikudaginn.

„Messi verður sífellt betri með aldrinum. FImm mörk í tveimur leikjum, eini markaskorari Argentínu. Hann er alltaf á réttum stað á réttum tíma, hann er á miðjunni að stjórna leiknum," sagði Giroud.
Lewis Jones hjá Sky Sports veltir því fyrir sér hvort Messi muni spila síðasta leikinn gegn Jórdaníu.
„Lionel Messi og Argentína eru komin áfram, líklega sem sigurvegari í riðlinum. Þorið þið að hvíla hann gegn Jórdaníu? Eða leyfa honum að fá tækifæri til að bæta við markametið? Að mínu mati reynið að segja honum að hann eigi að hvíla," sagði Jones.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!