Fotbolti.net
22.06.26 - 20:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Byrjunarlið Frakklands og Íraks: Þrjár breytingar hjá Frökkum

Byrjunarlið Frakklands og Íraks: Þrjár breytingar hjá Frökkum
Canon

Mynd: EPA

Frakkland getur tryggt sér sæti í 32-liða úrslitum á HM með sigri á Írak í kvöld.

Didier Deschamps gerir þrjár breytingar á franska liðinu frá 3-1 sigri á Senegal. Lucas Digne, Manu Kone og Bradley Barcola koma inn fyrir Desire Doue, Aurelien Tchouameni og Theo Hernandez.

William Saliba greindi frá því að hann hefur verið að spila í gegnum verki undanfarna mánuði en hann byrjar í kvöld.

Það er markmannsbreyting hjá Írak. Ahemd Basil kemur inn fyrir Jalal Hassan. Zidane Iqbal, fyrrum leikmaður Man Utd, kemur einnig inn ásamt Ahmed Qasem. Ali Jasim og Ali Al Hamadi setjast á bekkinn.
Frakkland: Maignan, Digne, Saliba, Upamecano, Kounde, Rabiot, Kone, Barcola, Dembele, Olise, Mbappe.

Írak: Basil, Doski, Hashim, Tahseen, Ali, Ismael, Al Ammari, Qasem, Iqbal, Bayesh, Hussein.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.