Fotbolti.net
22.06.26 - 20:48
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Jón Óli: Ég gerði stór mistök

Auglýsing
Jón Óli: Ég gerði stór mistök
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
ÍBV tapaði 3-0 gegn Breiðabliki í Bestu deild kvenna í kvöld. Fótbolti.net ræddi við Jón Ólaf Daníelsson, þjálfara ÍBV, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: ÍBV 0 - 3 Breiðablik
„Ég er gríðarlega ósáttur með sjálfan mig. Ég gerði stór mistök með því að byrja í fimm manna vörn. Eftir að við breytum í 4-4-2 var leikurinn mjög góður af okkar hálfu," sagði Jón Óli.

„Ég var hræddur við - eftir 120 mínútna leik, þrjá leiki á níu dögum og einhverjir að koma úr meiðslum - að þetta gæti orðið of erfitt. Ég held að ég hafi gert mistök í dag."

Jón Óli skynjaði þreytu í hópnum.

„Ég held að við hefðum séð það á vissum lykilmönnum að frammistaðan var ekki alveg eins og við erum vön að sjá frá þeim. Það voru allir að gera sitt besta en því miður fór sem fór."

Liðið hefur aðeins nælt í tvö stig úr síðustu fimm leikjum en liðið byrjaði mótið á fjórum sigrum í röð.

„Þetta er samkvæmt spánni. Við erum að glíma við frábær lið og vorum í skakkaföllum. Vonandi náum við að nýta þetta hlé sem kemur núna vel og komum vel undirbúnar fyrir næsta leik."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.