Fotbolti.net
22.07.21 - 11:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Gray til Everton (Staðfest)

Gray varð meistari með Leicester árið 2016.

Gray varð meistari með Leicester árið 2016.

Canon

Mynd: Getty Images

Demarai Gray er genginn í raðir Everton frá þýska félaginu Bayer Leverkusen.

Dvölin hjá Leverkusen var frekar misheppnuð. Hann skrifaði undir átján mánaða samning við félagið þegar hann gekk í raðir Leverkusen í janúar, kom við sögu í tólf leikjum og skoraði eitt mark.
Gray fór til Leverkusen frá Leicester þar sem hann hafði verið í fimm ár. Everton greiðir tvær milljónir punda fyrir vængmanninn.

Gray er 25 ára gamall og var lykilmaður í U21 landsliði Englendinga, þar sem hann skoraði 8 mörk í 26 leikjum.

Gray er þriðji leikmaðurinn sem gengur til liðs við Everton í vikunni en þeir Asmir Begovic og Andros Townsend höfðu áður verið staðfestir.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.