22.07.26 - 20:18
Brynjar Ingi Erluson
Nánast öruggt að Garnacho verði keyptur til Villa að láninu loknu

Garnacho mun spila í Villa-treyjunni á komandi leiktíð

Mynd: Instagram

Garnacho mun spila í Villa-treyjunni á komandi leiktíð

Mynd: Instagram
Aston Villa hefur náð samkomulagi við Chelsea um að fá argentínska kantmanninn Alejandro Garnacho á láni út þetta tímabil og verður kaupskylda í samningnum. Þetta fullyrða David Ornstein og Fabrizio Romano á X.

TENGT EFNI
Garnacho á leið til Villa
Villa þurfti að bæta við sig vængmanni eftir að félagið seldi Morgan Rogers til Chelsea fyrir 117 milljónir punda.
Forráðamenn Villa hófu viðræður við Chelsea um Garnacho og samkvæmt Fabrizio Romano er Unai Emery, stjóri liðsins, mjög spenntur fyrir því að vinna með leikmanninum.
Samkomulag hefur nú náðst um lán út tímabilið. Samningurinn inniheldur kaupskyldu upp á 40 milljónir punda verði ákveðnum skilyrðum mætt.
Helstu félagaskiptafréttamenn eru sammála um að skilyrðin séu auðveld viðureignar og því nánast öruggt að Villa kaupi Garnacho að lánstímanum loknum.
Garnacho er nú að ljúka læknisskoðun hjá Villa og verður kynntur til leiks í kjölfarið.

???????????? EXCLUSIVE: Aston Villa agree deal to sign Alejandro Garnacho from Chelsea, here we go!
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) July 22, 2026
Club to club agreement done on loan with buy clause to become mandatory under certain conditions.
Unai Emery wanted Garnacho. Medical also booked. pic.twitter.com/qvBmt3z5TB