Fotbolti.net
22.08.16 - 20:39
Jóhann Ingi Hafþórsson

Rúnar Páll: Að sjálfsögðu getum við náð FH

Auglýsing
Rúnar Páll Sigmundsson

Rúnar Páll Sigmundsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar var hundfúll eftir 3-2 tap gegn FH í toppslag Pepsi-deildarinnar í kvöld.

Hann segir dekkningar í föstum leikatriðum hafi kostað Stjörnuna í kvöld en tvö af þrem mörkum FH komu úr hornspyrnum.
„Dekkningar í föstum leikatriðum, það er það sem klikkaði í dag.\"

„Það er mjög grátlegt, sérstaklega þar sem við vorum búnir að æfa þetta mjög mikið og vissum nákvæmnlega hvernig FH-ingarnir myndu gera þetta.\"

Stjarnan er nú sjö stigum á eftir FH og sex leikir eftir af deildinni en Rúnar játar sig ekki sigraðan og segir Stjörnuna geta náð FH.

„Að sjálfsögðu getum við það, tölfræðin segir að við getum það en FH er öflugt lið og ég efast um að þeir fari að misstíga sig mikið meira.\"

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.