Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 22. ágúst 2019 18:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Vilja koma 60 þúsund áhorfendum fyrir á Anfield
Frá Anfield.
Frá Anfield.
Mynd: Getty Images
Alex Oxlade-Chamberlain.
Alex Oxlade-Chamberlain.
Mynd: Getty Images
Þetta hefur verið fínasti dagur fyrir Liverpool. Fyrr í dag var það tilkynnt að félagið stefnir á það að stækka leikvang sinn, Anfield, enn frekar.

Stefnt er á það að leikvangurinn muni rúma fleiri en 60.000 áhorfendur.

Anfield tekur núna rúmlega 54 þúsund áhorfendur, en völlurinn var síðast stækkaður um 8.500 sæti árið 2016.

Oxlade-Chamberlain framlengir
Liverpool sendi svo frá sér tilkynningu í kvöld um nýjan samning fyrir miðjumanninn Alex Oxlade-Chamberlain.

Oxlade-Chamberlain er búinn að jafna sig af alvarlegum meiðslum sem hrjáðu hann nánast allt síðasta tímabil. Hann skrifaði undir samning til 2023.

Hann var keyptur til Liverpool frá Arsenal 2017 fyrir 35 milljónir punda.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner