22.08.26 - 10:00
Ívan Guðjón Baldursson
Umboðsmaður Alvarez birti færslu um lygar

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Fernando Hidalgo, umboðsmaður argentínsku stórstjörnunnar Julián Alvarez, er ekki sáttur með umfjöllunina sem er í gangi um skjólstæðing sinn í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum.

TENGT EFNI
Alvarez bað liðsfélagana afsökunar - Fer ekki til Barcelona
Alvarez, sem á fjögur ár eftir af samningi við Atlético Madrid, greindi frá því í viðtali í júlí að hann vildi fá félagaskipti yfir til keppinauta Atlético í FC Barcelona.
Stjórnendur Atlético og Barca hafa átt í miklum orðaskiptum í fjölmiðlum vegna málsins og þykir ljóst að Atlético hefur engan áhuga á að selja einn af bestu framherjum heimsfótboltans.
Miguel Ángel Gil, framkvæmdastjóri Atlético, er einn af þeim sem hefur tjáð sig opinberlega um málið og kennir hann ráðgjöfum Alvarez um að skapa ríkjandi ástand með slæmum ráðleggingum til hans.
Þessi ummæli Gil gætu hafa farið fyrir brjóstið á Hidalgo miðað við nýjustu færslu hans á lokaðri Instagram síðu sinni.
„Aldrei skaltu spyrja lygara hvers vegna hann laug. Til að útskýra það, þarf hann að ljúga meira."

„Gríðarlega valdamikil félög reyna að sundra okkur"
???? Julián Álvarez’s agent Fernando Hidalgo “Never ask a liar why they lied. To explain it, they'd have to lie again”. pic.twitter.com/tdof0ladwz
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) August 21, 2026

Mynd: EPA