„Þetta eru draumakaup fyrir stuðningsmenn Liverpool að fá þennan mann inn," sagði Hlynur Valsson, lýsandi hjá Síminn Sport, í hlaðvarpsþættinum, þar sem rætt var um Thiago Alcantara.
Thiago kom til Liverpool frá Bayern Munchen á tuttugu milljónir punda síðastliðinn föstudag.
„Þetta er gæi sem hefur verið góður alls staðar þar sem hann hefur spilað. Hann hefur unnið allt og smellur fullkomlega inn í þetta lið. Hann er nýbúinn að skrifa undir, kemur inn á hálfleik og á geggjaðan leik. Þetta er of gott til að vera satt fyrir Liverpool."

Thiago kom inn á í hálfleik í 2-0 útisigri Liverpool gegn Chelsea um helgina og átti góða byrjun með Englandsmeisturunum.
„Ég elska karakterinn í þessum strák. Mér finnst það skína í gegn. Þetta er karakter sem er með hugarfarið 100% á réttum stað. Hann peppar aðra leikmenn í gang. Hann er betri varnarmaður en margir halda. Hann er að kasta sér fyrir boltann og vinna hann," sagði Gunnar Ormslev um Thiago.
Hér að neðan má hlusta á hlaðvarpsþáttinn "Enski boltinn" í heild.
Athugasemdir