Lið vikunnar í enska - Fyrrum leikmaður ÍBV valinn

Ederson (Manchester City) - Átti eina magnaða vörslu í sigrinum á Crystal Palace.

Mynd: Getty Images

George Baldock (Sheffield United) - Fyrrum leikmaður ÍBV hjálpaði Sheffield United að leggja Arsenal.

Mynd: Getty Images

John Egan (Sheffield United) - Hjálpaði Sheffield United að halda hreinu í fjórða skipti á tímabilinu.

Mynd: Getty Images

Yerri Mina (Everton) - Átti þátt í langþráðum sigri Everton á West Ham

Mynd: Getty Images

Marcos Alonso (Chelsea) - Skoraði sigurmarkið gegn Newcastle.

Mynd: Getty Images

Andre Gomes (Everton) - Spilaði sinn besta leik á þessu tímabili á miðju Everton.

Mynd: Getty Images

Abdoulaye Doucouré (Watford) - Skoraði markið í jafntefli gegn Tottenham á útivelli.

Mynd: Getty Images

Youri Tielemans (Leicester) - Tryggði Leicester stigin þrjú gegn Burnley með frábæru skoti í slána og inn.

Mynd: Getty Images

David Silva (Manchester City) - Var í stuði gegn Crystal Palace og skoraði laglegt mark.

Mynd: Getty Images

Jack Grealish (Aston Villa) - Skoraði og lagði upp í sigri á Brighton.

Mynd: Getty Images

Marcus Rashford (Manchester United) - Átti sinn besta leik í langan tíma og skoraði gegn Liverpool.

Mynd: Getty Images





