Valur mætir finnsku meisturunum í HJK Helsinki í 32-liða úrslitum Meistaradeildar kvenna en dregið var rétt í þessu.
Ekki er leikið heima og að heiman að þessu sinni heldur er um eina viðureign að ræða.
Ekki er leikið heima og að heiman að þessu sinni heldur er um eina viðureign að ræða.
Valur fær heimaleik gegn HJK en spilað verður á Origo-vellinum.
Leikurinn mun fara fram 3 eða 4. nóvember næstkomandi.
Harðar reglur varðandi æfingar gera undirbúning Vals erfiðan fyrir leikinn en leikmenn mega ekki æfa saman í dag og síðasti leikur liðsins var 3. október.
Athugasemdir