Real Madrid vill Enzo og Huijsen - Liverpool, Arsenal og Man Utd hafa áhuga á Gibbs-White - Sane orðaður við Liverpool
banner
   lau 22. október 2022 22:40
Ívan Guðjón Baldursson
Sigurjón Rúnars framlengir við Grindavík (Staðfest)
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Sigurjón Rúnarsson er búinn að skrifa undir nýjan samning við Grindavík sem gildir næstu tvö árin eða út keppnistímabilið 2024.


Sigurjón er 22 ára gamall og hefur verið lykilmaður í liði Grindavíkur undanfarin ár. Hann er uppalinn hjá félaginu og á rúmlega 100 leiki að baki fyrir meistaraflokk.

„Ég er gríðarlega stoltur af því að semja við einn af okkar uppöldu leikmönnum. Sigurjón er mikill Grindavíkingur og ber hagsmuni félagsins fyrir brjósti. Hann er mjög efnilegur miðvörður og lykilmaður í liði Grindavíkur,“ segir Haukur Guðberg Einarsson, formaður Knattspyrnudeildar Grindavíkur.

Sigurjón er öflugur miðvörður með tvo leiki að baki fyrir U19 landslið Íslands.

„Ég er mjög ánægður með að semja við Grindavík til næstu tveggja ára,“ segir Sigurjón. „Það er frábær umgjörð hér í Grindavík og mikill metnaður til staðar hjá félaginu til að komast aftur upp í Bestu deildina. Ég vil taka þátt í þeim uppgangi sem ég trúi að sé framundan hjá félaginu.“

Sigurjón skoraði eitt mark í fimmtán leikjum í Lengjudeildinni í sumar. Þá á hann 28 leiki að baki með Grindavík í efstu deild.


Athugasemdir
banner
banner
banner