Raufoss 1 - 1 Tromsö
Tromsö er komið upp í efstu deild á nýjan leik eftir jafntefli gegn Raufoss í dag, stigið dugði til að tryggja sætið.
Raufoss leiddi í rúman klukkutíma í dag en Ruben Jenssen jafnaði fyrir Tromsö í uppbótartíma. Tromsö er nú með sjö stiga forskot á Sogndal sem situr í 3. sæti deildarinnar þegar sex stig eru í pottinum.
Tromsö lék í efstu deild á síðustu leiktíð en féll niður í næstefstu deild. Adam Örn Arnarson er leikmaður Tromsö en hann glímir við meiðsli og var því ekki með í dag.
Athugasemdir