Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 22. nóvember 2020 18:59
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þýskaland: Union Berlín að byrja tímabilið frábærlega
Taiwo Awoniyi.
Taiwo Awoniyi.
Mynd: Liverpool
Koln 1 - 2 Union Berlin
0-1 Taiwo Awoniyi ('27 )
1-1 Ellyes Skhiri ('36 )
1-1 Max Kruse ('72 , Misnotað víti)
1-2 Max Kruse ('72 )

Union Berlín vann flottan útisigur gegn Köln þegar liðin áttust við í síðari leik dagsins í þýsku úrvalsdeildinni.

Taiwo Awoniyi, fyrrum leikmaður Liverpool, kom Union Berlín yfir á 27. mínútu en Ellyes Skhiri jafnaði fyrir heimamenn í Köln á 36. mínútu.

Staðan var 1-1 í hálfleik. Upp úr 70. mínútu dró til tíðinda þegar Union Berlín fékk vítaspyrnu. Max Kruse fór á punktinn og mistókst að skora, en hann náði frákastinu og tókst þá að skora.

Það reyndist sigurmarkið og lokatölur 2-1 fyrir Union Berlín, sem er í fimmta sæti með 15 stig. Köln er í næst neðsta sæti með þrjú stig. Union Berlín er að byrja þetta tímabil frábærlega.

Önnur úrslit:
Þýskaland: Mateta skoraði þrennu í fyrsta sigri Mainz - Gulli frá vegna meiðsla
Athugasemdir
banner
banner