Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mán 22. nóvember 2021 12:31
Elvar Geir Magnússon
Steve Bruce vill verða bráðabirgðastjóri Man Utd
Steve Bruce hefur áhuga á að taka við sem bráðabirgðastjóri Manchester United. Liðið tapaði sínum fimmta deildarleik af síðasta sjö þegar það tapaði 4-1 gegn Watford.

Michael Carrick mun stýra United á meðan félagið leitar að bráðabirgðastjóra sem á að stýra liðinu út timabilið.

Bruce, sem er fyrrum varnarmaður Manchester United, vill verða bráðabirgðastjórinn samkvæmt frétt Daily Mail.

Bruce var rekinn frá Newcastle í síðasta mánuði, eftir að Sádi-Arabarnir keyptu félagið.

Mauricio Pochettino er sterklega orðaður við United en sagt er að hann sé tilbúinn að hætta strax hjá PSG til að taka við á Old Trafford.
Athugasemdir