Aurelien Tchouameni staðfesti í viðtali við Le Parisien að fyrsta liðið sem hafði áhuga á sér fyrir félagaskipti sumarsins hefði verið Liverpool.
Tchouameni er 22 miðjumaður sem var keyptur til Real Madrid frá Mónakó í sumar. Tchouameni steig sín fyrstu skref hjá Bordeaux. Hann fór til Mónakó árið 2020 og í sumar borgaði Real Madrid 80 milljónir evra fyrir hann.

Liverpool hafði áhuga á Tchouameni en hann endaði hjá spænska stórveldinu.
„Fyrsta liðið sem sýndi áhuga á mér var Liverpool. Það voru viðræður, en um leið og Real Madrid kom inn í myndina var ég búinn að taka ákvörðun."
„Ég hikaði ekki í sekúndu. Ég sagði við umboðsmanninn minn: farðu með mig til Real Madrid."
Tchouameni er með franska landsliðinu á HM og verður líklega í eldlínunni þegar Frakkar mæta Áströlum í dag.
Athugasemdir