Mauricio Pochettino, stjóri Paris Saint-Germain, útilokar það ekki að Brasilíumaðurinn Neymar fái persónulegt leyfi í mars til að fara í afmæli systur sinnar.
Neymar og systir hans, Rafaella Santos, eiga afar náið samband og eru til að mynda með fyrirferðamikil húðflúr af hvoru öðru.
Frá 2015 til 2019 var Neymar annað hvort í banni eða meiddur og gat hann því verið við afmæli systur sinnar. Hann var hins vegar að spila 11. mars í fyrra þegar PSG vann Dortmund í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Hann gæti fengið frí í ár til að vera viðstaddur þegar systir hans fagnar 25 ára afmæli sínu. Pochettino, sem er nýtekinn við PSG, útilokar það ekki.
„Þegar tíminn kemur, þá sjáum við til. Það er mikilvægt að vera góður í taktík, en að vera góður stjórnandi er lykilatriði," sagði Pochettino.
Í ár á PSG að spila við Barcelona, fyrrum félag Neymar, í Meistaradeildinni þann 10. mars og svo við Nantes fjórum dögum síðar í frönsku úrvalsdeildinni.
🇫🇷⚽️Pochettino, entrenador del PSG en @ellarguero
— El Larguero (@ellarguero) January 19, 2021
🎂 "¿El cumpleaños de la hermana de Neymar? Cuando llegue el momento veremos qué pasa"https://t.co/JUgzLRhjqA pic.twitter.com/lS47tQXmgu
Athugasemdir