Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 23. janúar 2021 06:00
Victor Pálsson
Mandzukic: Annars væri ég heima að horfa á sjónvarpið
Mynd: Getty Images
Mario Mandzukic er reiðubúinn að spila hvar sem er á vellinum fyrir AC Milan en hann samdi við félagið á dögunum á frjálsri sölu.

Mandzukic er 34 ára gamall sóknarmaður en hann hefur leikið með Juventus á Ítalíu og var síðast hjá Al Duhail í Katar.

Milan er að berjast um titilinn í Serie A og er það mikill liðsstyrkur fyrir komandi átök að fá inn reynslu Króatans.

„Ef ég væri ekki tilbúinn að semja við lið eins og Milan þá hefði ég haldið mig heima að horfa á sjónvarpið," sagði Mandzukic.

„Ég hef beðið eftir einhverju svona síðustu mánuði. Ég hef aldrei meiðst illa og hef undirbúið líkamann fyrir fjögur ár í viðbót í hæsta gæðaflokki."

„Þið getið treyst mér, ég er góður. Ég sagði við stjórann að ég væri til í að spila alls staðar á vellinum ef það hjálpar liðinu að vinna."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner