Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   lau 23. janúar 2021 07:30
Victor Pálsson
Marcos Paulo á leið til Atletico Madrid
Mynd: Getty
Atletico Madrid á Spáni er nálægt því að tryggja sér leikmann að nafni Marcos Paulo sem spilar með Fluminese í Brasilíu.

Frá þessu greina ýmsir miðlar en um er að ræða 19 ára gamlan sóknarmann sem þykir ansi efnilegur.

Paulo mun ekki ganga í raðir Atletico fyrr en í sumar en hann mun gera fimm ára samning í Madríd.

Þessi ungi Brassi hefur spilað 25 sinnum fyrir Fluminese á þessu tímabili og skorað í þeim þrjú mörk.

Samningur Paulo rennur út eftir tímabilið í Brasilíu og má hann því ræða við önnur félög.

Atletico mun semja við leikmanninn á næstu dögum en hann mun klára tímabilið með Fluminese.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner