Fotbolti.net
23.01.22 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson

Svava Rós sögð á leið til AC Milan

Svava Rós sögð á leið til AC Milan
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Svava Rós Guðmundsdóttir gæti verið á leið til AC Milan eftir að hafa jafnað sig af Covid.
Svava Rós leikur með Bordeaux í franska boltanum en hefur ekki fengið mikið af tækifærum. Hún vill því halda í ítalska boltann og reyna fyrir sér með Milan.

Félagaskiptin virtust vera að ganga í gegn fyrr í janúar en svo veiktist Svava af Covid og var útlit fyrir að Milan ætlaði að hætta við skiptin.

Nú er Svava þó búin að jafna sig og hefur Milan enn áhuga samkvæmt ítölskum fréttamiðlum.

Svava myndi fylla í skarð Valentina Giacinti sem var lánuð til Fiorentina á dögunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.