Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   mán 23. janúar 2023 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Mourinho: Zaniolo hefur farið fram á sölu
Nicolo Zaniolo
Nicolo Zaniolo
Mynd: Getty Images
Nicolo Zaniolo, leikmaður Roma, hefur farið fram á sölu frá félaginu en þetta staðfesti Jose Mourinho, þjálfari liðsins, á blaðamannafundi í gær.

Zaniolo er 24 ára gamall sóknartengiliður sem kom frá Inter fyrir fimm árum.

Hann hefur tekið þátt í 17 leikjum með Roma á þessu tímabili og flesta í byrjunarliði.

Zaniolo hefur síðusta daga verið orðaður við Tottenham á Englandi en hann hefur formlega farið fram á sölu frá Roma.

„Nicolo Zaniolo hefur beðið um að yfirgefa félagið en ég veit ekki hvort það verður eitthvað af því. Þau tilboð sem við höfum fengið eru ekki nægilega góð. Við þurfum bara gott tilboð til að leyfa honum að vera og það er ekki komið. Ég hef það á tilfinningunni að hann verði áfram hér,“ sagði Mourinho.
Athugasemdir
banner
banner
banner