Fotbolti.net
23.01.25 - 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Vignir Snær ráðinn aðstoðarþjálfari Vestra

Vignir Snær ráðinn aðstoðarþjálfari Vestra
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vignir Snær Stefánsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Vestra. Hann kemur frá Stjörnunni þar sem hann var aðstoðarþjálfari kvennaliðs félagsins.
Vignir er fæddur árið 1996 en hann hefur einnig þjálfað Gróttu og KR og yngri flokka hjá félögunum.

Hann spilaði á sínum tíma með Víking Ó og lék síðast með Þór árið 2021.

Vignir tekur við starfinu hjá Vestra af Daniel Osafo-Badu sem var aðstoðarþjálfari Davíðs Smára Lamude frá 2022.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.