KSÍ hefur tilkynnt að búið sé að breyta úrslitum í leik Augnabliks og KF í B-deild Lengjubikarsins.
Augnablik vann leik liðanna 1-0 á laugardag en KF hefur nú verið dæmdur 3-0 sigur.
Augnablik vann leik liðanna 1-0 á laugardag en KF hefur nú verið dæmdur 3-0 sigur.
Ástæðan er sú að Sindri Þór Ingimarsson og Ísak Eyþór Guðlaugsson spiluðu með Augnabliki en þeir eru skráðir í Breiðablik.
Augnablik hefur einnig verið sektað um 90 þúsund krónur vegna málsins.
Athugasemdir