Birkir Heimisson, miðjumaður Vals, er ristarbrotinn en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag
Birkir verður líklega frá keppni í fjórar til sex vikur vegna meiðslanna.
Birkir verður líklega frá keppni í fjórar til sex vikur vegna meiðslanna.
Hinn 21 árs gamli Birkir ætti því að vera kominn aftur á fulla ferð þegar Valur mætir ÍA í opnunarleik Pepsi Max-deildarinnar þann 22. apríl næstkomandi.
Birkir kom til Vals frá Heerenveen fyrir síðasta tímabil en hann skoraði eitt mark í sextán leikjum í Pepsi Max-deildinni í fyrra.
Athugasemdir