Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 23. febrúar 2021 14:48
Magnús Már Einarsson
EM U19 ára landsliða aflýst
Ólafur Ingi Skúlason nýráðinn þjálfari U19 karla.
Ólafur Ingi Skúlason nýráðinn þjálfari U19 karla.
Mynd: Raggi Óla
UEFA hefur tilkynnt að EM 2020/21 hjá U19 karla og kvenna hefur verið aflýst.

Ákvörðunin var tekin í ljósi stöðunnar í heimsálfunni vegna COVID-19 faraldursins.

U19 karla hafði dregist í riðil í undankeppninni með Noregi, Ungverjalandi og Andorra, en riðilinn átti að leika í Noregi.

Á meðan dróst U19 kvenna í riðil með Georgíu, Finnlandi og Búlgaríu og átti riðillinn upphaflega að fara fram í Búlgaríu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner