Leiknir Fáskrúðsfirði hefur fengið miðjumanninn Heiðar Snæ Ragnarsson í sínar raðir frá Einherja.
Heiðar er 18 ára gamall en þrátt fyrir ungan aldur á hann að baki 53 meistaraflokksleiki með Einherja en hann hefur skorað tvö mörk í þeim.
„Það verður spennandi að fylgjast með Heiðari í Leiknisbúningnum enda bráðefnilegur leikmaður þarna á ferðinni. Hjartanlega velkominn í Leikni Heiðar!" segir á heimasíðu Leiknis.
Leiknir féll á markatölu úr Lengjudeildinni í fyrra og spilar í 2. deild í ár.
Athugasemdir