Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   mán 23. febrúar 2026 15:42
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
„Gerði mikið fyrir hjartað í mér að sjá hann ná að vera valinn í landsliðið"
'Hann hefur náð því öllu. Það er æðislegt og við samgleðjumst honum allir'
'Hann hefur náð því öllu. Það er æðislegt og við samgleðjumst honum allir'
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Markinu gegn Silkeborg á Greifavellinum fagnað.
Markinu gegn Silkeborg á Greifavellinum fagnað.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
'Hann er miklu betri leikmaður í dag en hann var 25 ára'
'Hann er miklu betri leikmaður í dag en hann var 25 ára'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hallgrímur Mar Steingrímsson var fyrr í þessum mánuði valinn í íslenska landsliðið í fyrsta sinn.

Hann er nú úti í Mexíkó, Queretaro, þar sem landsliðið undirbýr sig fyrir landsleik á miðvikudagskvöld. Leikurinn hefst 02:00 aðfaranótt fimmtudags að íslenskum tíma.

Hallgrímur er 35 ára og hefur um árabil verið einn besti leikmaður Bestu deildarinnar. Á síðasta tímabili skoraði hann 13 mörk og lagði upp fimm í Bestu deildinni samkvæmt Fotmob. Hann kom inn í landsliðshópinn eftir að Aron Sigurðarson dró sig úr hópnum. Hallgrímur Mar hefur aldrei spilað landsleik, hvorki með A-landsliðinu né yngri landsliðunum.

Fótbolti.net ræddi í síðustu viku við Hallgrím Jónasson - Hadda, þjálfara KA, um nafna hans.

„Grímsi er eiginlega bara ótrúlegur, hann er miklu betri leikmaður í dag en hann var 25 ára. Hann er ennþá með líkama á við 25 ára mann en hann er orðinn miklu þroskaðri liðsmaður en hann var. Mér finnst hann hafa tekið þvílík skref undanfarin þrjú ár og þvílík virðing á hann að hafa haldið áfram að bæta sig og þróast í betri og betri leikmann með hverju árinu. Hann heldur áfram að skora yfir 10 mörk og leggja upp slatta."

„Síðast núna gegn Víkingi (í Lengjubikarnum) minnti hann á sig, skoraði frábært aukaspyrnumark og stóð sig ótrúlega vel."

„Það er svo allt í lagi að minnast á það að gegn Silkeborg hljóp hann 16 km í heimaleiknum sem fór í framlengingu. Hann var gjörsamlega frábær í þeirri viðureign, skoraði tvö mörk á móti Silkeborg og er á ótrúlega háu leveli. Hann gerir mjög mikið fyrir okkur,"
segir Haddi.

„Það gerði mikið fyrir hjartað í mér að sjá hann ná að vera valinn í landsliðið. Hann er mjög hæfileikaríkur og hefur alltaf verið í KA frá því að hann kom í Völsung fyrir utan eitt tímabil í Víkingi."

„Ég er ekki viss um margir hefðu sagt við hann fyrir svona tveimur árum, þegar hann var 33 ára, að hann ætti eftir að verða bikarmeistari, spila vel í Evrópu og verða valinn í landsliðið. Hann hefur náð því öllu. Það er æðislegt og við samgleðjumst honum allir,"
bætti þjálfarinn við.

Hallgrímur Jónasson lék á sínum tíma 16 A-landsleiki og skoraði í þeim þrjú mörk. Síðasti leikurinn var einmitt vináttuleikur gegn Mexíkó í febrúar 2017. Mexíkó vann þann leik 1-0 með marki frá Alan Pulido. Sá leikur var spilaður í Las Vegas.

Hallgrímur Mar framlengdi á dögunum samning sinn við KA, hann er nú samningsbundinn félaginu út 2027.
Athugasemdir
banner
banner