Stefan Tufegdzic er fæddur árið 2010 og verið í yngri flokkum Vals síðustu ár.
Í síðustu viku var hann á reynslu hjá sænska stórliðinu Malmö og æfði þar með U17 en tók einnig æfingu með U19 liði félagsins.
Stefan er sóknarmaður sem spilaði síðasta sumar með 2. og 3. flokki Vals. Hann spilaði samkvæmt KSÍ alls 34 leiki og skoraði 20 mörk.

Bróðir Stefans, Novak, er fæddur árið 2012. Hann er miðjumaður sem spilaði með 3. og 4. flokki Vals. Hann var einnig með í ferðinni og æfði með U15 hjá Malmö.
Þeir eru syndir Srdjan Tufegdzic sem var látinn fara frá Val eftir síðasta tímabil. Túfa, eins og hann er oftast kallaður, tók við sem þjálfari IFK Värnamo í sænsku B-deildinni í lok síðasta árs.
Tveir Íslendingar eru í aðalliði Malmö, það eru þeir Arnór Sigurðsson og Daníel Tristan Guðjohnsen.
Athugasemdir