Fotbolti.net
23.03.23 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Hákon og Sævar framlengja í Fjallabyggð

Hákon og Sævar framlengja í Fjallabyggð
Canon

Mynd: KF - Facebook

Sævar Þór Fylkisson og Hákon Hilmarsson hafa skrifað undir nýjan samning við KF.

Sævar gekk til liðs við KF árið 2017 frá Þór en hann hefur verið í lykilhlutverki síðustu tvö tímabil. Hann hefur spilað 92 leiki fyrir félagið og skorað 11 mörk.

Hákon er uppalinn hjá KF og lék sinn fyrsta leik fyrir félagið árið 2015. Síðan þá hefur hann spilað 147 leiki og skorað 3 mörk.

„Alltaf mikil ánægja þegar að svona menn halda áfram vegferðinni sem KF er á og erum við stolt af þessum drengjum," segir í tilkynningu frá félaginu.

Hákon og Sævar framlengja í Fjallabyggð
Canon

Mynd: KF - Facebook

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.