Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
   þri 23. apríl 2019 21:08
Arnar Helgi Magnússon
Eriksen: Tók nokkur upphitunarskot áður
Christian Eriksen var hetja Tottenham þegar hann skoraði sigurmark liðsins gegn Brighton á 87. mínútu þegar liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Leiknum lauk með 1-0 sigri Tottenaham.

Daninn fékk þá boltann fyrir utan teig frá Dele Alli, stillti upp og lét vaða með vinstri. Matt Ryan í marki Brighton náði ekki að koma í veg fyrir að boltinn myndi enda í netinu.

„Ég átti nokkur upphitunarskot áður en Matt Ryan gerði vel," sagði Eriksen léttur eftir leik.

„Við fengum nokkur góð tækifæri en loksins datt þetta inn. Þetta eru mikilvæg úrslit fyrir okkur eftir tapið gegn Manchester City um helgina."

„Þetta var mjög erfiður og langur leikur. Við þurfum að halda áfram að ná úrslitum og halda pressunni á liðunum í kringum okkur. Það er frábært að styrkja stöðuna í þriðja sætinu," sagði Eriksen að lokum.


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 32 21 7 4 62 24 +38 70
2 Man City 31 19 7 5 63 28 +35 64
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Aston Villa 32 16 7 9 43 38 +5 55
5 Liverpool 32 15 7 10 52 42 +10 52
6 Chelsea 33 13 9 11 53 42 +11 48
7 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
8 Bournemouth 33 11 15 7 50 50 0 48
9 Brighton 33 12 11 10 45 39 +6 47
10 Everton 32 13 8 11 39 37 +2 47
11 Sunderland 32 12 10 10 33 36 -3 46
12 Fulham 33 13 6 14 43 46 -3 45
13 Crystal Palace 31 11 9 11 35 36 -1 42
14 Newcastle 33 12 6 15 46 49 -3 42
15 Leeds 33 9 12 12 42 49 -7 39
16 Nott. Forest 32 8 9 15 32 44 -12 33
17 West Ham 32 8 8 16 40 57 -17 32
18 Tottenham 33 7 10 16 42 53 -11 31
19 Burnley 32 4 8 20 33 63 -30 20
20 Wolves 33 3 8 22 24 61 -37 17
Slapp
banner
banner