Fotbolti.net
23.05.18 - 21:24
Elvar Geir Magnússon

Baldur: Maður þarf að geta litið í eigin barm

Auglýsing
Baldur er búinn að skora í tveimur leikjum í röð.

Baldur er búinn að skora í tveimur leikjum í röð.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Baldur Sigurðsson var maður leiksins þegar Stjarnan vann sinn fyrsta sigur í Pepsi-deildinni þetta tímabilið. Hann skoraði og lagði upp í kvöld.
„Þetta er ekki bara sigurleikur. Við héldum líka markinu hreinu,\" sagði Baldur við Fótbolta.net í dag.

Stjarnan er mætt aftur í fjögurra manna vörn eftir að hafa byrjað móti í þriggja manna vörn.

„Okkur virðist líða betur. Við erum komnir í boltann sem við spiluðum svolítið í upphafi móts í fyrra. Svolítið power play en við getum spilað boltanum líka.\"

„Þetta kerfi hentar okkur vissulega vel. Mér fannst hitt kerfið gera það líka en maður þarf að geta litið í eigin barm og þjálfararnir gerðu það svo sannarlega með því að skipta um kerfi.\"

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.