Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mán 23. maí 2022 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kamara til Aston Villa á frjálsri sölu (Staðfest)
Mynd: EPA
Fyrr í dag var greint frá því að Aston Villa væri að ganga frá því að fá Boubacar Kamara frá Marseille.

Kamara kemur á frjálsri sölu þar samningur hans við franska félagið er útrunninn.

Kamara er 22 ára gamall og hefur Aston Villa staðfest komu hans til félagsins. Leikmaðurinn skrifar undir fimm ára samning.

Kamara er varnartengiliður að upplagi en getur einnig spilað sem miðvörður. Hann á 48 leiki að baki fyrir yngri landslið Frakklands og hefur í heildina spilað 170 keppnisleiki fyrir aðallið Marseille.

Manchester United og Atletico Madrid höfðu áhuga á Frakkanum.




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner