Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 23. maí 2022 12:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Markmannsgeitin framlengir við Bayern (Staðfest)
Mynd: EPA
Manuel Neuer hefur framlengt samning sinn við Bayern Munchen fram á sumarið 2024.

Það er annar hver maður kallaður „geit" (e. GOAT - greatest of all time) þessa dagana.

Neuer gerir tilkall til þess að vera besti markmaður allra tíma ef horft er í titlasafnið.

Bayern birti myndband á samfélagsmiðlum sínum í dag þar sem sést í eitt stykki geit og svo Neuer sjálfan.

Neuer er 36 ára gamall og hefur verið hjá Bayern frá 2011. Í vor varð hann þýskur meistari tíunda árið í röð.


Athugasemdir
banner
banner