Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 23. júní 2021 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fiorentina kaupir Nico Gonzalez (Staðfest) - Dýrasti í sögu félagsins
Gonzalez
Gonzalez
Mynd: EPA
Fiorentina hefur gengið frá kaupunum á Nicolas Ivan Gonzalez frá Stuttgart.

Gonzalez er argentínskur sóknarmaður sem kom til Stuttgart árið 2018 frá uppeldisfélagi sínu Argentinos Juniors.

Hjá Stuttgart skoraði hann 22 mörk í 72 deildarleikjum, þar af sex mörk í fimmtán leikjum á liðinni leiktíð. Hann glímdi við mikil meiðsli sem útskýrir hvers vegna leikirnir voru ekki fleiri.

Hann átti þrjú ár eftir af samningi og því þurfti Fiorentina að kaupa hann frá þýska félaginu.

Hinn örvfætti Nico varð 23 ára í apríl. Hann á að baki sjö leiki fyrir A-landslið Argentínu.

Hann er talinn kosta Fiorentina 23-27 milljónir evra. Hann er dýrasti leikmaður í sögu félagsins en Juan Cuadrado var sá dýrasti til þessa þegar hann var keyptur á 20 milljónir evra frá Udinese árið 2013.


Athugasemdir
banner
banner
banner