Hinn efnilegi Róbert Quental Árnason, leikmaður Leiknis í Breiðholti, er staddur í Svíþjóð þar sem hann er til reynslu hjá Malmö.
Róbert hélt út á sunnudaginn en Malmö er sigursælasta félag sænskrar knattspyrnu.
Þessi sextán ára sóknarleikmaður lék sinn fyrsta leik í efstu deild hér á landi þegar hann kom inn af bekknum í 1-0 tapi Leiknis gegn Íslandsmeisturum Vals í Pepsi Max-deildinni í sumar.

Á heimasíðu Leiknis er sagt að mikill áhugi sé á Róberti erlendis frá, meðal annars frá Frakklandi og Ítalíu.
„Ljóst er að frekari fréttir munu berast af honum á næstunni," segir á leiknir.com.
Róbert fór á reynslu til Norrköping á síðasta ári og þá hefur hann einnig verið hjá Auxerre í Frakklandi.
Athugasemdir