Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 23. júní 2021 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tveir körfuboltamenn skoruðu í 4. deild
Björgvin Hafþór til hægri
Björgvin Hafþór til hægri
Mynd: Grindavík
Tveir leikmenn í efstu deild í körfubolta skoruðu í sigrum sinna liða í A-riðli 4. deildar í gær.

Það eru þeir Björgvin Hafþór Ríkharðsson og Jón Arnór Sverrisson.

Björgvin skoraði í 2-1 sigri GG gegn Árborg. Björgvin skoraði fyrra mark GG en hann er leikmaður Grindavíkur í körfubolta.

Jón Arnór skoraði annað mark RB í 2-3 sigri gegn KFR. Jón Arnór er leikmaður Njarðvíkur í körfubolta.

Björgvin hefur spilað þrjá leiki í sumar en hann lék síðast keppnisleik árið 2011 með Skallagrími. Hann hefur skoraði eitt mark í sumar.

Jón Arnór er að spila sínu fyrstu keppnisleiki í sumar og hefur hann skorað fimm mörk í fimm leikjum.


Jón Arnór til hægri


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner